...eftir 13. júní.
Þær þekkja mig systur mínar, mágkonur, frænkur og vinkonur, eins og sést á þessum góðu gjöfum sem þær gáfu mér.
Útsaumaður dúkur, heklaðar stjörnur, hvítir kertastjakar og þessi litla bók um ilmvötn sem ég á eftir að grípa með mér út í sólskinið einn daginn og glugga í.
Snilldar svar Chanel aftan á bókarkápunni :)
Áratugagamall tertudiskur úr bleika pressuglerinu sem ég safna, gamall blómabolli af Flóamarkaðinum í Dæli, gamall heklaður dúkur, undurfallegt veski frá Lisbeth Dahl keypt í Sirku á Akueyri, gamall fallegur stjaki undir ilmolíur keyptur á flóamarkaði og svo þessi líka dásamlega fallegu fiðrildi, handverk Guðnýjar Fjólu vinkonu minnar sem hefur heklað fiðrildin og saumað perluhringi á svo að úr urðu servéttuhringir, snilldarflottir!
Og meira fallegt...
algjörlega himneskt veski frá Lisbeth Dahl, svo í mínum anda að það hálfa væri nóg!
Þegar Björk tók þessi veski upp í Sirku snemma í vor merkti hún mig á mynd af einu slíku á facebook þar sem hún þekkir nú orðið smekk frænku sinnar ;-)
Síðan hefur verið á stefnuskrá að eignast eitt slíkt og veskið fékk ég núna í afmælisgjöf frá yngri börnunum mínum, sá meira að segja um að sækja það sjálf í búðina :)
Krossinn er líka úr Sirku, ég átti einn fyrir sem ég nota sem hálsmen en nú bættist annar við,
sá verður notaður til skrauts hér heima. Þeir eru undur fallegir alveg hreint þessir krossar,
eins og líka netta blómamenið sem sést þarna fyrir aftan krossinn og ég fékk í afmælisgjöf núna, sumarlegt og sætt.
Það er svo sannarlega gamaldags rómantískur blær yfir veskinu.
Það minnir mig mjög á ýmislegt sem ég hef séð frá sjötta áratugnum,
eins og til dæmis þetta gamla plast skartgripaskrín sem ég á og er frá þeim tíma.
Sætt að utan sem innan... Lisbeth Dahl klikkar ekki á smáatriðunum.
Þetta gamla sykurmolakar var keypt á Flóamarkaðinum í Dæli og ég var fljót að tileinka mér hugmynd Öddu vinkonu minnar um að nýta svona krús með loki fyrir armbandageymslu.
Armbandið er að sjálfsögðu eftir hana Öddu, ég hvet ykkur sem þekkið ekki síðurnar hennar að athuga þær hið fyrsta!
Flöskurnar sem standa þarna hjá eru úr Frúnni í Hamborg og eru úr gamla pressuglerinu frá því eftir 1930 sem ég safna.
Hún er Kikkuleg þessi... enda valdi ég hana sjálf í Rósinni, kær gjöf frá tengdaforeldrunum.
Falleg ekki satt?
Og ein bóndarósin mín sem enn neitar að opnast...
Loks sést hér dásamlega falleg blanda frá Rannveigu vinkonu, hvítt og sumarlegt blúndupils
og svo föndurefni, hún veit hvers ég þarfnast :)
Nú er bara að koma öllu því nýja fyrir og í notkun,
með þakklæti fyrir góðar gjafir og fyrir allt það góða fólk sem ég á að.
I love it!
Með kærri kveðju og ósk um góða helgi :)
♥
Blessuð og sæl Kikka.
ReplyDeleteÞetta eru undurfallegir munir allt saman og ljúft að skoða.
Takk fyrir að deila þessu með okkur og góða helgi :)
Bestu kveðjur
Ólöf
Sæl og blessuð Ólöf, takk fyrir það og takk fyrir að staldra hérna við :)
ReplyDeleteGóðar sumarstundir!
Kær kveðja,
Kikka